72. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í stigaherbergi í Alþingishúsi, miðvikudaginn 1. júní 2016
kl. 19:30
Mættir:
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 19:30Guðmundur Steingrímsson (GStein) 1. varaformaður, kl. 19:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 19:30
Haraldur Einarsson (HE), kl. 19:30
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 19:30
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 19:30
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 19:30
Svandís Svavarsdóttir (SSv) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 19:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 19:30
Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir
Bókað:
1) 728. mál - útlendingar Kl. 19:30
Á fund nefndarinnar komu Alda Hrönn Jóhannesdóttir frá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Íris Björg Kristjánsdóttir frá innanríkisráðuneytinu. Fóru þær yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarinnar.
2) 425. mál - tölvutækt snið þingskjala Kl. 19:55
Nefndin afgreiddi álit sitt á þingsályktunartillögunn. Allir viðstaddir nefndarmenn voru samþykkir álitinu.
3) Önnur mál Kl. 20:00
Fundi slitið kl. 20:00